Viðskiptavinir 365, allir eða hluti þeirra urðu fyrir því að áskriftardeild 365 tók tvöfallt áskriftargjald af greiðslukortum fyrir júlímánuð. Sendi út afsökunarbréf samdægurs og í stað þess að endurgreiða samdægurs sögðu þeir að ekkert yrði rukkað fyrir ágúst.Eitthvert ósvífnasta viðskiptatrix seinni tíma. Enda svarar forstjórinn Ari Eðwald ekki formlegum fyrirspurnum um umfang þessarar lántöku, forðaði sér til útlanda. Ef þetta er yfir línuna, gæti hér verið um tugi jafnvel hundruð milljóna króna vaxtalaust lán,sem þetta almenningshlutafél í eigu Baugs tekur hjá andvaralausum áskrifendum. Hlutabréfin eru að vísu í frjálsu falli og stutt í að að Baugur leysi þau til sín,en svona lúaleg vinnubrögð taka auðvitað engu tali. Í Guðana bænum ekki láta þá komast upp svínaríið.
Gladdi mig að sjá að PM er kominn til baka upp í Efstaleiti eftir tregfiskirí norðan heiða.Kastljósi í gær lauk snyrtilega á því að kynnir tilkynnti að siðanefnd BÍ hefði úrskurðað brot Kastljóss og Helga Seljan gagnvart frú Jónínu Bjartmars alvarlegt og hægt væri að skoða úrskurð og andsvar á vef RÚV.
Svo er bara að læra af þessu og vanda betur til verka næst.Mín reynsla er að auðveldara er að fá mál á hreint með kurteisri og málefnalegri festu í spurningum,en með hasar og  látum. Mín spá er að Helgi Seljan eigi eftir að skipa sér í fremstu röð fjölmiðlamanna, ef hann hefur til þess nennu.
Horfði á magnað sjónarspil náttúrunnar í gær, rétt er sól lengsta dags árins var að hverfa bak við vesturfjöllin.Sá allt í einu fuglager á vesturbakka Stangarhyls,sem eltu tvær tófur sem hoppuðu og skoppuðu, gersamlega áhyggju- og áhugalausar um þetta fiðurfé. Svo hlupu þeir niður skriðurnar og yfir Langá milli Stangarhyls og Réttarhyls og upp að blettinum fyrir utan borðstofugluggann minn til að kanna fæðuframboð.Það var ekkert og þá héldu þær bara áfram með kríuskara á eftir sér. Ótrúlega margbrotið sjónarspil.
Eitthvert ótrúlegasta pólitíska sjónarspil seinni tíma, er landfyllingarhugmynd bæjarstjórans í Hafnarfirði um stækkun árversins. Forstjóri Alcans svaraði kurteislega að þeir myndu skoða málið ef bæjarstjórinn teldi það vænlegt.Í einkasamræðum velti forstjórinn fyrir sér hvaða rugl þetta væri í manni,sem hefði með aðgerðarleysi persónulega  komið í veg fyrir stækkun álversins.
Ruglið er auðvitað til komið af því að það er að fjara pólitískt undan Lúðvík Geirssyni,sem hefur gert sig að algeru fífli í málinu og ekki hvað síst með þessu landfyllingarútspili.
Gestur Hrafnaþings í dag 20. júní, Arthur Bogason leiðtogi
smábátasjómanna,sem berjast af hörku gegn því að farið verði að ráðum Hafró um
niðurskurð þorskafla um 63 þúsund tonn.
Segja Hafró ekki virða reynslu sjómanna,segja Hafró í raun
óalandi og óferjandi.Ef við einkavæddum Hafró, myndum við fá öðruvísi
niðurstöður en hjá ríkisstarfsmönnum??.Við spyrjum að því.
RÚVhroki Kastljóssmanna vekur sannast sagna óhug. Var svo
sem búinn að sjá og finna fyrir RÚVhroka fyrir alllöngu hjá Þórhalli “ ekki
lengur” vini mínum Gunnarssyni.Þekki þennan hroka því ég var haldinn honum
sjálfur,sem fréttastjóri sjónvarpsins
seint á síðustu öld.Reyndi að fara vel með hann, tókst misjafnlega.Hraunaði
stundum yfir fólk,sem átti það ekki skilið. Á sama hátt og vinur minn ungi og efnilegi
Helgi Seljan gerðist sekur um gagnvart frú Jónínu Bjartmars.
Ég fékk tvær eða þrjár rasskellingar frá Siðanefnd BÍ og í
kjölfarið meira að segja opinbert áminningarbréf frá Markúsi Erni Antonsyni,sem
ég gaf nú aldrei rassgat eða roð fyrir. Hvað þá að mér dytti í hug að fara
munnhöggvast við þetta lið eins og Þórhallur gerir með hreint dæmalausum hroka.
Menn eiga að taka til sín gagnrýni,læra af henni og þroskast,sérstaklega ef
þeir sitja á hrokastólum í skjóli lögverndaðrar sjálftöku fjár til að fjármagna
þjóðarkastljós af æði misjöfnum gæðum.
Ætlast til að Páll Magnússon taki þetta mál þeim tökum,að
verði til að bæta þjóðmálaumfjöllun Sjónvarpsins,sem í allri sanngirni er til
fyrirmyndar á margan hátt,en má bæta.
Einn dagur enn og eitt hænufet til birtu svo snýr hænan við
og stoppar ekki fyrr en við vetrarsólstöður.Merkilegt hvað þessi dagur vekur
með mér angurværð.Er það vegna þess að ég veit að samverustundum mínum með
fuglunum,sem ég elska, lýkur innan 8 vikna eða svo, eða er það bara vegna þess
að ég veit að 64. sumri mínu á jörðu lýkur fyrr en varir.
Ég ætla
að njóta nóttlausrar
voraldar veraldar og þakka almættinu fyrir að hafa fengið að fæðast á Íslandi
af yndislegum foreldrum, Lóu Tynes og Jóni Sigtryggssyni,sem að auki gáfu mér 4
systini sem ég elska og gáfu mér barnungum frelsi til eigin athafna, hvort sem
var til náms eða vinnu til sjós eða lands og urðu að auki mínir bestu vinir til
dauðadags.
Hrafnaþing er á Visir.is og rás 18 á Breiðbandi og Adsl símans.
Kvennréttindadagurinn 19. júní.Á maður að segja
loksins loksins að ráðherra jafnréttismála láti að því liggja að lagasetning
kunni að vera í pípunum með 3ja ára biðtíma ,sem kveði á um aukið hlutfall
þátttöku kvenna í stjórn og stjórnun fyrirtækja. Búinn að hamra á þessu árum
saman. Yngvi Örn Kristinsson framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbanka Íslands
og sérlegur hagfræðilegur ráðgjafi Hrafnaþings er gestur dagsins
Þakka öllum sem tóku þátt í
fjölmennu Langármóti á nýja átján holu vellinum okkar að Hamri í Borgarnesi.Glæsdilegt
mót á einum glæsilegasta velli landsins
Fyrstu laxarnir komnir úr
Langá, hún er eins og allar aðrar íslenskar laxveiðár í seinni kanntinum í ár.
Stundum er laxinn aðeins fyrr á ferð stundum aðeins seinna, en 85% laxa ganga á
bilinu 25 júní til 15. júlí. Og ár sunnan og vestanlands verða fullar af laxi í
sumar
Hvernig og kannski frekar á
maður að vera með puttana í lífríki íslenskrar náttúru?.Ég er með samviskubit
yfir því að hafa sagt Bjössa á Læk, Sigurbirni á Leirulæk frá rebbunum
tveimur,sem koma til okkar undir miðnætti á hverri nóttu til að sníkja.
Kríur stelkuar,lóur og spóar
æpa varnaðarorð út í næturþögnina,en lágfóta lætur sér fátt um finnast.
Það er þvílíkt af fiskiönd
við Langá að við munum varla eftir öðru eins. Segir okkur það eitt að
seiðabúskapurinn er með slíkum blóma að það er nóg að bíta og brenna fyrir
þetta fiðurfé,sem sagt er eta þyngd sína af seiðum á hverjum degi. Þegar ég fór
ofan úr Langá í morgun, voru fjórar á beit í Stangarhyl og flugu ekki einu
sinni upp þótt ég í kallaði og klappaði saman lófunum. Kannski hafa þær verið
svo troðfullar af seiðum að þær náðu ekki flugtaki.
Búið að borga gat á
kvótakerfið segir Árni Mathiesen hæstvirtur fjármálaráðherra og fyrrum ráðherra
sjávarútvegsmála. Þingmenn Norðvesturskjördæmis, eða á maður að segja þingmenn
Vestfjarða  rembast eins og maðurinn við
staurinn við að búa til einhvers konar gjafakvóta fyrir Vestfirðinga. Fannst
hins vegar flott hjá Össuri Skarphéðinssyni,sem segir háskólasetur  er undirstaða framtíðar fyrir Vestfirðinga,
ekki sértækar, víðtækar aðgerðir
Afleysingafólk komið til
starfa í fjármálaráðuneytinu,sem hefur ekki græna glóru  um að íslensk efnahagslífs byggir á allt öðrum
grunni,en það gerði í gær. Hissa á hæstvirtum fjármálaráðherra að láta svona
endemis vitleysu um neikvæðan hagvöxt frá sér fara.Endurskoðuð þjóðhagsspá, er
meira að segja farin að gera
ráð fyrir  að þúsundir gangi hér um
atvinnulausir strax næsta ár.
Þessu er spáð þótt fyrir
liggi að ráðist verður í minnsta kosti Helguvíkurálver og líklega Straumsvíkur
eða Keilisnes í náinni framtíð. Afurðaverð í sjávarútvegi 30 prósentustigum
hærri en nokkru sinni í útflutningsögu þjóðar,sem sendir fullar þotur af fiski
kvölds og morgna austur og vestur um haf.
Hrafnaþing er á Visir.is og rás 18 á Breiðbandi og ADSL
Símans.
Hallur Hallson og Jón G. Hauksson Ritstjóri frjálsrar
verslunar gestir okkar í dag.Skoðuðum fréttir vikunnar úr pólitík,fjölmiðlun og viðskiptum,stórskemmtilegur og fróðlegur þáttur.
Lifandis skelfing er ég feginn að það skuli skarast línur
hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu.Einhver sjórnarandstöðu pótintáti kallaði
þetta ríkisstjórn hins ófullgerða stjórnarsáttmála.Guðni Ágústsson formaður
framsóknarflokksins sagði samfylkinguna með alla vasa fulla af handsprengjum,sem
hún myndu varpa að samstarfsflokknum.
Eðlilegt að menn segi svona,sem sjá fram á 4 ára þrautagöngu
um eyðimörk stjórnarandstöðu.
Ég einfaldlega gleðst yfir því að menn skuli tala svolítið
út og suður,sérstaklega fólk,sem er óvant sviðsljósi ráðherradómsins og þarf að
átta sig á hlutunum.Meðan fólk tjáir sig spontant,fáum við virkikilega að sjá
heyra persónulega skoðanir,sem síðar munu víkja fyrir spunum spunameistara,sem
þykjast ráðleggja heilt.
Þessi stjórn byrjar með stæl, sérstaklega er ég ánægður með
nýjan hæstvirtan samg0nguráðherra,sem ég held að eigi eftir að slá Sturlu
Böðvarsson út,sem þótti með afkastameiri samgönguráðherrum.
Loksins kemur maður,sem tekur undir með mér um að ökufantar
verði ekki stoppaðir fyrrn en ökutækin eru einfaldlega gerð upptæk, hvort sem
það eru bílar eða bifhjól á sama hátt og menn gera eiturlyf upptæk. Ólafur Helgi
Kjartansson sýslumaður á Selfossi er sammála mér að taka drápstólin af þessum
andskotum.
365, er vonlaust fyrirtæki að skipta við,sem er að sigla inn í einkaeign Baugs.Þakka Guði fyrir að hafa losað mig við öll hlutabréfin í janúar sl, eftir hörmungarviðskipti við þjónustudeild fyrirtækisins.Ekki batnaði það nú.Keyptum
áskrift að sumarbústaðnum og fyrir veiðihúsið Langárbyrgi fyrir 4 dögum. Fengum
afhenta 2 gallaða myndlykla og höfum ekki náð að opna eina einustu
áskriftarrás,sem við greiddum þó rúmar  8
þúsund krónur fyrir á hvorum stað.
Ég var meira og minna
allann daginn í símanum í gær við 5 manneskjur í þjónustuveri Gísla,Eirík og
Helga.allar fóru þær með mér í gegnum sömu leiðirnar,sem enduðu alltaf allar
með lokaða rás. Loksins sagði einhver Íris þú verður bara að keyra upp í Baulu
og fá þér nýjan.Það eru nú bara 50 kílómetrar.Ég sagði við stúlkuna,sem var
ákaflega kurteis og vildi vera hjálpleg, þið selduð mér gallaða áskrift,nú
sendið þið Ómar Örn , ykkar mann í Borgarnesi með nýjan lykil og látið hann
stilla lykilinn inn. Nei, við gerum ekki svoleiðis sagði blessuð stúlkan, farðu
bara í Baulu. Greinileg viðhorf til landsbyggðapakksins,engin elsku mamma fyrir það.
Sannast ítrekað á 365
Skítafyrirtæki veita skítaþjónustu.
Ari Eðvald getur tekið þessar 2 áskriftir og troðið þeim að
vild eftir að hafa endurgreitt mér.
Kristinn Pétursson
útgerðarmaður frá Bakkafirði,landsþekktur  gagnrýnandi og uppreisnarmaður jafnvel gegn
vinnubrögðum og veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar átti að vera í dag en
frestast til næsta þriðjudags..Hann blæs á síðustu skýrslu og 130 þúsund tonna
ráðgjöf og hefur eins og Guðjón Arnar Kristjánsson sem var hjá okkur í gær allt
aðrar hugmyndir um hvernig við eigum að stjórna veiðunum. Alltaf áhugavert að
heyra sem flest sjónarmiðið enda boðar sjávarútvegsráðherra víðtæk
samráðsstjórnmál áður en hann tekur ákvörðun og leggur fyrir ríkisstjórnina.
Mikið rosalega finn ég til með Eyjólfi Sverrissyni og
íslensku landsliðsmönnunum.Hýenurnar í hópi íþróttafréttamanna og sjálfskipaðra
sérfræðinga þyrstir í blóð,heimta höfuð Eyjólfs á fati, hann sé fótboltalega
gjaldþrota eins og Gaupi orðar það og geti bara ekki gert þjóðinni það að reyna
að sitja áfram.
Það er eins og þessir ágætu menn skilji ekki merg málsins.
Allir landsliðsmennirnir og þjálfarinn eru að gera sitt besta í öllum leikjum,en það er
bara ekki betra en dagsformið er hverju sinni.Þar að auki gerast bara hlutir.
Hvað gerði ekki Liverpool á móti Milan
í hitteðfyrra.
Búnir að skít tapa leiknum
núll þrjú, er þeir skora þrjú á 7 mínútum og vinna síðan í
vítaspyrnukeppni. Við lentum í svona 11 mínútum á móti Svíum og fimmta
markið,sem var ein af þessum uppákomum í knattspyrnuheiminum sem enginn skilur
í.
Ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir þessum ungu mönnum. Margir
þeirra,sem hafa með þrotlausri vinnu og fórnum náð því að hasla sér völl í
efstu deildum atvinnuknattpsyrnu Evrópu. Síðan koma þeir heim og leggja alla
sína drauma á vogarskálar, er þeir ganga launalausir til leiks fyrir sína litlu
þjóð.
Litlu en ógnar kröfuhörðu þjóð.
Gleymið ekki að allir
héldu fyrir 10 árum að knattspyrnuferill Eiðs Smára væri á enda,er  írskur glæpastrákur sparkaði hann niður í
ungmennalandsleik.
Vinur minn Gaupi og aðrir hans starfsbræður sem telja sig
umkomna þess að tæta æruna af þjálfara og leikmönnum eiga aðeins að hægja
ferðina.Gaupi,sem árum saman var aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í
handknattleik veit hversu brothættir íslenskir íþróttamenn eru.Það er ekki
auðvelt að standa frammi fyrir tugum þúsunda á óvinveittum útivelli.Það getur
verið nóg til þess að jafnvel hörðustu naglar fái vatn á milli liða.
Svo eigum við okkar
dýrðardaga, er minnimáttarkendin hverfur eins og dögg fyrir sólu og hver
snerting við bolta er eins og síðasta sekúndan í úrslitaleik
heimsmeistarakeppni.Við vinnum Austurþjóðverja á laugardalsvelli,hetjur Íslands
eru Ásgeir Sigurvinsson og Jóhannes Eðvaldsson, gerum jafntefli við heimsmeistara
Frakka ,hetja Íslands er Ríkharður Daðason og strákarnir okkar eru þeir
flottustu í heimi.Þá er þjálfurum hampað og gulldrengir lofaðir í hæstu hæðum.
Við vinnum  þrjú núll
á Laugardalsvelli, erum svo rasskeltir fimm núll á Idrætsparken. Íslensk
knattspyrna í hotskurn, skin og skúra,eða fárviðris eins og í
Kaupmannahöfn  fjórtán tvö árið, er
markmaður Íslands var besti maður liðsisins.
Við skulum þess vegna bara þakka fyrir okkur í hvert skipti
sem þessir ungu menn klæðast landsliðstreyjum.Sjálfsagt að gagnrýna og vera
fúl, er á móti blæs,en  fagna og hrósa er
flest gengur upp.
Og hananú.
Verð að hrósa  stjórn
orkuveitu reykjavíkur, einu flottasta fyrirtækis landsins fyrir að taka upp
gegnsæi í upplýsingum um orkuverð til stóriðju.Kemur í ljós að verðið til
Norðurálsverksmiðjunnar er meðalverð á norræna orkumarkaðnum. Kemur líka í ljós
að verðið er svo hagstætt að það lækkar orkuverð til viðskiptavina á
athafnasvæði veitunnar okkar.
Svo gladdi það mitt hjarta að sjá framfarahemla vinstri
grænna Kolbrúnu Halldórsdóttur og Árna Þór Sigurðsson halda áfram sama
andskotans vælinu á alþingi og saka lýðræðislega kjörinn meirihluta um
framtíðar bolabrögð til að koma málum í gegnum þingið.
Fannst hins vegar gamli Moggablaðamaðurinn Þórunn
Sveinbjarnardóttir hæstvirtur umhverfisráðherra lítt sannfærandi , reynslulítil og einföld á að hlýða.
Hrafnaþing er á rás 18 á Breiðbandi og ADSL og Visir.is
undir vefmiðlar.
Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður og formaður frjálslynda
flokksins á Hrafnaþingi dagsins. Skráður skipstjóri í símaskránni og meðal
annars þess vegna sem ég bauð honum til okkar. Óvissa í sjávarútvegi og þar með
fyrir landbyggðina í heild sinni.Guðjón talar eins og Kristinn H Gunnarsson um
200 þúsund tonna jafnstöðuafla.
Á morgun Kristinn Pétursson útgerðarmaður á Bakkafirði og
fyrrum alþingismaður fyrir Sálfstæðisflokkinn.
Ekki sumarlegt á syðri hluta eyjunnar bláu og ekki
sumarútlit svo langt  sem spár ná.Þegar
ég keyrða ofan úr Langá undir hádegisbilið,keyrði ég alla leiðina inn í
sannkallað skítaveður.Eina góða við þetta er að við  Langárbændur þurfum ekki að hafa áhyggjur af
veiðivatni fram í ágúst alla vega þótt ekki komi meira dropi úr lofti.
Langavatn orðið full og þá eigum við 7 vikna veiðivatnsforða. Sá fyrstu laxana
í morgun, 4 í Myrkhyl fyrir ofan gömlu brúna og einn bylti sér upp í harðaland
á Breiðunni. Alltaf notaleg tilfinning að sjá fyrstu sporhvötu gestina, alveg
eins og farfuglana.Á von á 6. stórveiðisumarinu í röð,risaárgangur fór til
sjávar í fyrravor og við erum búnir að ná svo góðum tökum á stórseiðasleppingum
að veiddar endurheimtur slá upp í 4 prósent. Gáfu okkur um 360 laxa í fyrra.
Talandi um farfugla,það varð mikið óhapp á Hrafnseyrarbökkum
í Langá í gærkvöldi. Ég og payloadermaður vorum að laga garða og veiðivegi.Í
fyrrakvöld hafði ég séð kríuhreiður í vegkantinum með einu eggi.Hlóð smá vörðu
til að vekja athygli manna á þessu heimili,sem ekki var meira en hola í grófa
möl.Payloadermaðurinn fór hins vegar aðeins og hratt á undan mér og ég náði
ekki að benda honum á hreiðrið sem því miður hverf undir vegruðningin.Það skar
hálfpartinn í hjarta að horfa á kríuparið sveima í lengri tíma yfir staðanum
og  leita að egginu.Ætla að skoða í kvöld
hvort hún er ekki búin að verpa öðru.Varð hissa í gærkvöldi er ég sá 20-30
fugla hóp af kríu í hálfgerðu hópflugi upp og niður ánna.
Veiðibændur gleðjast yfir fyrsta laxi vertíðarinnar,sem tók
flugu Bjarna Júl rétt rúmlega 7 í gærmorgun. Síðasta er ég vissi var
opnunarhollið að komast í 2ja stafa tölu eftir einn og hálfan dag. Blanda er
stórveiðimönnum erfið í miklum hitum og leysingavatni.
Sé það að einn virtasti þingmaður seinni tíma
hagfræðingurinn Vilhjálmur Egilsson er eins og ég búinn að fá nóg af
sikileyjarvöxtum Seðlabankans. Hann og
stjórnarmenn samtaka atvinnulífsins voru á fundi hjá oddvitum ríkisstjórnarflokkanna  og kvörtuðu sáran yfir vaxtastefnu. Davíð segir
Vilhjálm Egilsson ótrúverðugan Velti fyrir mér hvort þetta sé upphafið að
breytingum á lögum um seðlabankann.
Merkilegt hve skýrsla Hafró hefur lítil áhrif. Fyrir nokkrum
árum hefði dollarinn farið í hundrað kall á nóinu. Núna aðeins rétt um 3 prósent  frá því í fyrradag.
Mjólkursamsalan hafin yfir lög!!!! Trúir nokkur öðru en því að
þessir ágætu og ráðvöndu menn beiti öllum illum ráðum til að drepa Mjólku, eins og þeir drápu
Baulu hér um árið. Tek ofan fyrir Páli Gunnari Pálssyni, bænda og framsóknarráðherrasyninum frá Höllustöðum að láta
til skarar skríða gegn einokunarappratinu,sem Guðni Ágústsson hóf yfir lög
hvorki meira né minna.
Hitti Steinar Berg Ísleifsson Fossatúnsbónda í Húsasmiðjunni
í Borgarnesi. Sagði mér að hann væri  búinn  að selja 17 af 22 lóðum rétt við
Grímsárbakka. Ferðamannaþjónusta hans til fyrirmyndar. Glæsileg aðstaða fyrir
húsbíla og hjólhýsi sem fólk er bara farið að skilja eftir og kemur upp eftir
um helgar.Steinar Berg sagði mér frá öflugri markaðssetningu margra aðila í ferðþjónustu
á Vesturlandi. Sagðist njóta ferðabóndalífsins í botn og hættur að gefa út
tónlist,sem hann gerði um áratugaskeið, var einn af fyrstu athafnamönnum til að
huga að útrás og  útflutningi á
tónlist.Mikill fengur fyrir Vestlendinga að njóta starfskrafta hans.Á sama hátt
og sameiginlegur vinur okkur Guðlaugur Bergmann heitinn varð drifkraftur í
héraði.
Hrafnaþing er á Visir.is og rás 18 á Breiðbandi á leið inn á Digital Ísland
Sæl veriði síðasta dag maímánaðar,setning vorþings var
klukkan 2 í dag og  Geir Hilmar Haarde
forsætisráðherra að flytja stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar, stjórnar,sem gæti
setið lengur en elstu menn sjá fram í tímann.
Gamll hvalaflensari,ráðherra og alþingisforseti gestur
Hrafnaþings í dag. Halldór Blöndal að setjast á friðarstól  eftir áratuga þjónustu við norðlenska
kjósendur og þjóðina í heild sinni. Talar tæpitungulausa kjarngóða íslensku að vanda.
Eg skynja að stjórnarandstaðan sé felmtri sleginn,að
ofurefli ríkisstjórnarinnar verði slíkt að ekkert verði við ráðið.Ég held að
það  sé nokkuð rétt ályktað.Líklegast er
að Framsóknarmenn verði í svolitlum vandræðum með að hnýta í þann  sem hann hefur deilt hvílu með í 12 ár.Svo
eru bara engir pólitískir skæruliðar þar innanborðs, nema ef verraga skyldi
Bjarni Harðarson.
Langt síðan góður skrrolari hefur setið á alþingi og á
áreiðanlega eftir að lífga upp á umræður ef dæma má af heimsóknum hans í silfur
Egils.Vinstri grænir eru auðvitað með doktorspróf í kjafthætti og eru með vant
fólk innanborðs,sem hefur ekkert gert í sínu pólitíska lífi annað en vera á
móti öllu,en hafa ekkert uppbyggilegt til málanna að leggja.Þeim er þess vegna
vel treystandi til að veita þessari ofurstjórn verðugt aðhald.
Margir bíða spenntir eftir þátttöku Katrínar Jakobsdóttur í
þingstörfum.Hún er af skarpgreindri siglfirskri gáfumannaætt komin og fullfær
um að rúlla upp í hárbeittu háði andvaralausum öldungum úr stuttbuxnadeildum
bláu handarinnar Þessi unga lágvaxna hnáta er án efa mesti fengur Vinstri
grænna í kosningasigrinum.Kannski mesti fengur nýkjörins alþings ásamt Guðfinnu
Sesselíu Bjarnadóttur,sem Sjálfstæðisflokkinn skortir líklega þroska til að
nýta að verðleikum.
.Frjálslyndir væru örugglega á leið inn í
Sjálfstæðisflokkinn, ef ekki væri fyrir Kidda sleggju sem líklega yrði fyrr
vitavörður á Hornbjargi en að gerast liðsmaður bláu handarinnar.Það er
eiginlega synd að Frjálslyndir skuli dæmdir til enn einnar  fjögura ára eyðimerkurgöngu.Þingmennirnir fjórir
eru hörkunaglar hver á sinn hátt sem því miður eru dæmdir til að messa yfir
tómri kirkju.Allir nema Kristinn heiðbláir inn við beinið.
En út í allt aðra sálma. Skil ekki hvað mogginn meinar með
því í leiðara dagsins að reyna að verja eitthvert ljótasta hreysahverfi
borgarinnar Hverfisgötu,Lindargötu og nærliggjandi stíga.
Í minni bók hefði fyrir löngu átt að vera búið að fara með
jarðýtur og kranakúlur á mest af þessu.Ég hygg að margir hreysaeigendur hafi
fengið snert af yfirliði,er þeir fengu tilboð í eignir sínar frá athafnamönnum.
Enda er strandlengjan Skúla beach að verða fjár svöl svo
ekki sé meira sagt. Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson sagði á Hrafnaþingi gærdagsins að
hann vildi halda í heildarmyndina á horni Lækjargötu og Austurstrætis.Ég vil
rífa þessa kofa alla saman og byggja þarna miðbæjarvæn hús.Það er flott að láta
arkitekta landsins taka þátt í hönnunarsamkeppni,en svo eigum við að láta  Björgúlf og aðra viðskiptajöfra um
framhaldið.
Vissi ekki fyrr en ég las það í gær að nafngjafi minn Hrafninn verpti
jafn snemma og raun ber vitni til að geta fært sínu ungviði,egg og unga fugla
sem seinna verpa. Náttúran lætur ekki að sér hæða,er kemur að því að tryggja
afkomu lífveranna.
Datt þetta sama í hug er við félagarnir vorum að leika golf
á Selsdon Park
í London um
helgina.Höfum aldrei séð aðra eins mergð af íkornum. Voru bókstaflega um allt
og hættir að forða sér á hlaupum frá golfbílum.Sáum svo á áttundu braut er einn
kom skoppandi út úr skógarjaðrinum og stefndi yfir í skóginn hinu meginn.Allt í
einu kom einhvers konar Haukur eða Kráka sem leiftur af himni ,greip hann með
hvössum klóm og dauðrotaði með nefinu í sömu andrá.Flaug síðan og settist á
stóra grein og settist að hádegisverði.
Við sátum bókstaflega agndofa yfir þessu sjónarspili,sem
kannski tók 5 sekúndur.
Flott hjá Þór Sigfússyni forstjóra Sjóvá að bjóðast til að
sjá um og kosta að hluta viðbyggingu við Grensásdeild.Hann hefur áður komið með
framúrstefnuhugmyndir eins og t.d. að bjóðast til að annast tvöföldun
Suðurlandsvegar.
Þetta er nákvæmlega viðhorfið sem við viljum frá
stórfyrirtækjum landsins,að þau nýti hluta af ævintýralegum arði sínum fyrir
utan skattgreiðslur, til að kosta þarfar framkvæmdir í þágu borgaranna.Alþingi
þarf að hafa frumkvæði að því að setja heildarlöggjöf um góðgerðarstarfsemi.
Slík starfsemi er aftar fjölþætt og mikilvæg í hinum vestræna heimi og veltir
milljarðatugum til góðs fyrir heimsbyggðina.
Harfnaþing er á rás 18 á Breiðbandi og Visir.is
Borgarstjórahrafnaþing.
Miðvikudaginn 30 maí.Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson frá miklu að segja enda ys og
þys í höfuðborginni og starfskraftar borgarstjórnarmeirihlutans nýttir á fullu
við að búa  í haginn fyrir íbúa unga
sem aldna.
Ég veit ekki hvort landsmenn eiga það skilið að vera svo
heppnir að hafa Sjálfstæðismenn í öndvegi í borginni og landsmálunum.Líklega er
það nú samt svo.
Kom á miðnætti með gripaflutningavél Icelandair frá London
eftir langa Hvítasunnuhelgi á undurfögrum stað , Selsdon Park golfhótelinu,sem
margir Íslendingar kannast við.Þar skiptust á skin og skúrir og hitastigið var
á milli  6 og 26 gráður frá glampandi sól
í mígandi rigningu.
Forsíðumyndin á Daily Telegraph í gær sýnd hjón dúðuð í
regngalla að fylgjast með flugsýningu á mánudaginn undir fyrirsögninni blautt,
kalt og breskt.
Ég kallaði Icelandairþotuna gripaflutningavél hér áðan og ég
verð að segja það að þótt samkeppni sé hörð við Iceland express,SAS og British
Airways, eru takmörk fyrir því plássi milli sæta, eða frekar plássleysi sem
hægt er að bjóða fólki upp á.
Ég myndi telja það Icelandair til stórfells tekjuauka, ef
þeir tækju þó ekki væri nema 2 sætaraðir úr og bættu þannig líðan
fólksins.Fyrir utan það að manntjón yrði miklu minna,því fólk ætti mögulega
tækifæri til að komast úr sætum sínum ef flugóhapp yrði.
Annars á maður ekkert að vera rífa kjaft  farandi á 25 þúsund kall miða fram og til
baka til höfuðborgar breska heimsveldisins. Fá meira að segja jús og léttan
matarbakka í kaupbæti frá brosmildu flugþjónustufólki sem lítur ekki upp frá
vinnu sinni frá flugtaki til lendingar
rúmum tveimur klukkustundum síðar.
Gleymdi að spyrja hvernig gengi I Ameríkufluginu eftir að
Icelandair fækkaði um einn öryggisfulltrúa í farþegarými. Nú eru þar aðeins
fjórir í sparnaðarskyni,enda þarf aðallega að hugsa um hluthafa núna. Minna um
þægindi eða vellíðan viðskiptavina.
Ég  óska Icelandair
til hamingju með Hilton aðildina.Þetta er gríðarlegur sigur fyrir íslenska
ferðaþjónustu og mun ef að líkum lætur stórauka tekjur enda Hiltonhótelin
almennt talin í dýrari klassa.Hjá hvaða keðju skyldi nýji glæsiturn
Grandhótelsmana lenda?, Mariott eða Intercontinental.
Bjartir tímar framundan í ferðabransanum,sem og flestum
öðrum greinum, ef tekst að koma í veg fyrir að Seðlabankinn káli þeim með
Sikleyjarokurvöxtum.
Kæmi mér ekki á óvart þótt Hiltonkeðjan reyndi að næla sér
líka  í ráðstefnuhótelið,sem er að rísa á
hafnarbakkanum, enda hefð fyrir mörgum hótelum í hverri borga. Held að það séu
að minnsta kosti 10 í og umhverfis London.
Gæti farið um einhverja Hafnfirðinga, er fréttist af ferðum
Rannveigar Rist og Alcaneigenda til Þorlákshafnar í leit að nýjum stað.Rétt
rúmur  helmingur Gaflara ákvað að stöðva
framfaraþróun álrisans í Straumsvík.Það hefur bara eitt í för með sér.
Nýja staðsetningu,sem verður lítið mál er Suðurstrandarvegur
verður fullgerður, væntanlega um svipað leyti og 400 þúsund tonna álver verður
risið í námundan við höfnina í Þorlákshöfn.
En kannski verða komnir vitrari stjórnendur í Hafnarfirði
áður en til þess kemur.Svo gætu Hafnfirðingar allt eins greitt atkvæði um þetta
eftir tæp þrjú ár í sveitarstjórnarkosningum.
En svo er auðvitað sá möguleiki að það henti framtíð
Hafnarfjarðar best að álverið hreinlega fari og mannvirkin einfaldlega rifin.Þá
verður höfnin eftir og pláss fyrir 9 holu golfvöll til viðbótar fyrir
Keilismenn.Kannski ekkert slæm skipti það.
Makalaust, hreint makalaust ástríða Breta ´gagnvart minningu
Diönu prinsessu.Breska pressan talaði vart um annað um helgina  en einhvern þátt um dauða prinessunar á Skjá
4,þar sem sjást ljósmyndir af lækni,sem er að reyna að gefa deyjandi  konu súrefni.Flottasta auglýsing sem nokkur
þáttur hefur fengið og Skjár 4 menn gefa sig hvergi,En breska þjóðin tregar enn
þess fallegu stúlku,sem sjálf fór úr límingunum undir lokin eftir samskipti sín
við bresku hirðina og bresku pressuna.
Stjórnarandstöðublaðið Daily Mail ,sem í 10 ár hefur haldið
uppi látlausum árásum á Tony Blair og stjórn Verkamannaflokksins er búið að
láta reikna það út að breskir skattgreiðendur borga 6 sterlingspund og 60 pens
á klukkutíma í skatta  í breska
ríkissjóðinn. Munu vera  rétt um 800
krónur.Gaman að vita hver  hliðstæð tala
er á eyjunni bláu.
HRAFNAÞING ER Á VEFTV Á VISIR.IS OG RÁS 18 Á BREIÐBANDI KL 20,24,08 OG 14
Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki verið
jafnréttissinnaður.Svo einfalt er það.Vil bara ítreka það enn einu sinni áður
en ég fer að lofa nýju athafna og velferðarstjórn íslenska lýðveldisins.Verð
líka að segja að mér finnst minn
gamla starfsfélaga Geir Hilmar Haarde hafa sett niður og það að koma til
ríkisstjórnarsamstarfs með eina konu á móti þremur Samfylkingarmegin bera vott
um karlrembu eða kjarkleysi..
Allar flokksbundnar
og óflokksbundnar sjálfstæðiskonur eru hundfúlar og ég meina allar. Það er engin
skýring að segja svona er þetta bara,svona gerast kaupin á eyrinni, formaðurinn
ræður og ekki hefð fyrir að mótmæla.Þetta er ekki hægt árið 2007. Með mikilli
virðingu fyrir öðrum þingkonum,efast ég um að nokkur í Sjálfstæðisflokknum hafi
kynnt sér ferilskrá Guðfinnu S Bjarnadóttur, m.a.störf hennar við
stjórnunarráðgjöf hjá bandarískum stórfyrirtækjum.
Sorry Geir, ég mótmæli. Ég veit að mál eru erfið,en þess
vegna völdum við þig til formennsku  að
þú ert töff.Svo kemurðu draghaltur með fimm
/ eina og segir  þetta er bara
svona og ferð síðan undan í flæmingi,beðinn um skýringar.
Kannski vinkona mín Guðfinna skilji nú hvað ég meina þegar
ég segi að jafnrétti verði að sækja til karla með ofbeldi,berja þá í hausinn
eða kúga til hlýðni, t.d. eins og í Lysiströtu. Einfaldast að setja lög.
Þessi nýja ríkisstjórn er annars feiknalega vel mönnuð.Þetta
verður ekki ríkisstjórn stöðnunar, sérstaklega hvað varðar
Samfylkingarráðherra,sem hefur klæjað árum saman í lófana eftir að komast til
áhrifa.Ég tek undir með Pétri Blöndal,sem hefur eiginlega legið ónotaður af
flokknum í 12 ár,að margt í stjórnarsáttmálanum er eins og skær bjölluhljómur.
Samfylkingin hefur valið ráðherraembætti af kostgæfni,við
sjálfstæðismenn erum of íhaldssamir og veljum status quo að mestu.Eini ferskleikinn
er með Guðlaugi Þór Þórðarsyni,sem ég held að eigi eftir að brillera í
heilbrigðisráðuneytinu.
Hef áhyggjur af að Einar Kristinn verði íhaldssamur vörður
a.la Guðni Ágústsson um landbúnaðarhagsmuni. Á sama hátt og honum er ætlað að
standa vörð um kvótakerfið,þótt heimabyggð hans sé í björtu báli að
hluta.Sjálfstæðisflokkurinn fær kannski á sig blæ karlrembustöðnunar meðan allt
rokk og rólið verður hjá Samfylkingu. Kæmi mér ekki á óvart,en mun ráðast af hvernig
Geir hagar verkstjórninni og hvernig miðar við að efna stjórnarsáttmála
flokkanna.
Ég held þrátt fyrir allt að sjaldan ef nokkru sinni hafi
jafn glæstir tímar blasað við þessari þjóð.
Sæl verði í hríðarhraglanda mánuð af sumri. Jafet Ólafsson
hér á eftir í reglubundnu yfirliti yfir markaðinn og fjárfestingarmöguleika.Skoðum
stöðu Glitnis eftir forstjóraskiptin, vaxtastefnu seðlabankans, hækkanir á
mörkuðum.gengismálin og útflutningsatvinnuvegina..Hvað á að gera við milljónina undir koddanum.
Svo er fólk að fjasa um heimshlýnun.Við horfðumst í augu ég
og Maríuerla á Langárbökkum, er ég var að klára að setja niður kartöflur við
Langárbyrgi.Meðan ég brá mér inn til að sækja nýjar birgðir af hæfilega spíruðu
útsæði, snjóaði yfir holurnar,sem ég var búinn að gera í
fimmta beð.
Ég sver að ég var ekki meira en 3-4 mínútur í burtu.Fuglinn
sagði eiginlega við mig,er ég var forviða að sjúga upp í nefið í bláa
kuldagallanum,hvernig heldur þú að mér líði við hreiðurgerð.
Þetta góðir hálsar er Ísland í dag og þegar ég sá skítakulda
hraglanda veðurspá fram yfir Hvítasunnu, ákvað ég að skella mér til London,þar er spáð notalegum 25 gráðum.Þetta er hægt vegna
yndislegs fyrirtækis sem heitir Iceland
Express og knúði Icelandair til að hverfa frá áthagafjötrastefnu síðustu
áratuga.
Skynsamleg fargjaldastefna er nefnilega nákvæmlega eins
arðbær og skattalækkun og hefur leitt til þess að allar flugvélar,hvort sem er
kvölds eða morgna eru meira og minna fullsetnar árið um kring.
Nýja stjórnin komin á koppinn,eins og ég sagði við Össur á Hrafnaþingi rétt fyrir kosningar, pís of keik.Ingibjörg og Össur þurftu í
þingmannaveislu í gær og létu það því heita til að friða Kristján Má og Jóhönnu
Vigdísi,að hlé hefði verið gert á viðræðum..Það hlýtur að þýða bullandi
ágreining hrópuðu þau bæði. Hilmar og Sólrún glottu ógurlega,nei,nei,við erum
bara að gera
þetta samkvæmt okkar eigin hentugleikum.
Þetta var nú ekki alveg sanngjarnt af leiðtoganna hálfu,Geir
veit sem gamall Moggablaðamaður og þau eru aðeins að rækja skyldur við sína
áheyrendur,sem er þjóðin og bíður með öndina í hálsinum.´Eg sagði fyrir helgi,
þau eiga að koma út með stutta en hnitmiðað frásögn af viðræðum dagsins. Það
þarf engu að ljóstra upp,aðeins segja frá þeim máluim,sem hafa verið upp á
borðinu.
Voru bara búinn að klára þetta en sögðu engum fyrr en þingmannaviðtölin
byrjuðu í morgun.
Ég vona að gamli skólafélagi minn Jón Sigurðsson fái gott starf við hæfi,
er hann hrökklast burt úr pólitík niðurlægður af kjósendum jafnskjótt og hann
kom kallaður til skyldustarfa af tortímandanum Halldóri Ásgrímssyni.Halldór
hlýtur að fara með veggjum í  Kóngsins
Kaupmannahöfn,enda ekki til hans spursts, lengi lengi lengi.Þýðir lítið fyrir
Jón að tala um stórýktar fréttir af andláti sínu. Steingrímur Ólafsson var
trúnaðarmaður Halldórs Ásgrímssonar og veit manna best hve hriplek
framsóknarskútan er,þegar kemur að kjaftagangi.
Viðskiptaheimurinn á Íslandi fagnar nýju
viðreisnar,nýsköpunarstjórninni.Morgunblaðið gerir í buxurnar af ótta við að
Ingibjörg Sólrún sé að undirbúa stjórnarslit á miðju kjörtímibili til að mynda
vinstri stjórn Með Framsókn og Vinstri grænum.
Hvílíkt andskotans rugl.
Það er við lestur svona Reykjavíkurbréfs að maður skynjar að
tími Styrmis Gunnarssonar er löngu kominn.Eins og vangavelturnar um daginn um
hugsanlega misbeitingu forsetavalds. Sómakonan Ásta Möller, féll í þá freistni
að taka undir þessa dellu og var svo rasskellt af einhverjum að hún át þetta
allt ofan í sig fyrir framan myndavélina nokkrum mínútum síðar..Ekki veit ég
hver kallaði hana á teppið, kæmi mér ekki á óvart að það hefði verið gamall
Moggablaðamaður.
Það vekur  ótta minn að tveir  núverandi og fyrrverandi ritstjórar
Morgunblaðsins skuli vera  eins og úr sér
gegnir síðustu móhíkanar kalda stríðsins.
Ég held að aðalverkefni nýju stjórnarinnar verði að setja
sér  ný hagstjórnarmarkmið.Ég kann ekki
að meta það hversu skynsamleg verðbólgumarkmið Seðlabankans eru. Krónan
styrktist um tæpt prósent í dag og nálgast óðum 60 króna dollar á ný.Hlýtur að
boða einhvers konar efnahagslega kollsteypu.Flateyri er þá væntanlega bara
toppur á ísjaka.Það er alltaf áhugavert að hlusta á Einar Odd, gamla
bjargvættinn fjalla um efnahagsmál.
Hann segir einfaldlega þetta gengur ekki.Hvernig stendur  þá á
því að Kambur stendur svona , er verðmæti sjávarafla fyrstu 90 daga ársins
jókst um 20 prósent.Eru eigendur Kambs bara eins og gerist að breyta eignum í
reiðufé,þegar verð á kvóta er í sögulegu hámarki.Er eitthvert vit í því hjá
Halldóri bæjarstjóra á Ísafirði að reyna að fá almenning til að setja peninga í
vonlaust rekstrardæmi. Eiga vestfirðingar að fara að greiða einhvers konar
átthagafjötragjald.Olína Þorvarðar segir kjaftakerlingar í hópi útgerðarmanna hafa reiknað Kambsmönnum 2 milljarða króna gróða,hreint í vasa, eftir fjármagnstekjuskatt. Er nema von að mennirnir selji???
Jón Kristinn Snæhólm  hér á þriðja degi eftir kosningar er allir
standa með öndina í hálsinum yfir því hvað gerist.Í minni bók aðeins tveir
kostir,sama stjórn það er að segja ef Framsókn er ekki svo veruleikafirrt að halda
að það sé betra að byggja upp flokkinn í eyðimerkurgöngu stjórnarandstöðu en
með ráðuneyti og þingnefndaformennsku sér til halds og trausts.Hinn kosturinn
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur,ef Ingibjörg Sólrún kann almenna
kurteisissiði.
Aðeins að skjóta því hér inn í pólitíska argaþrasið,að
Langárkríurnar komu á sunnudagskvöldi og hófu strax nákvæmlega sama
tilhugalífsleikinn og í fyrra. Tveir karlar eða kerlingar að slást um einn á
lausu.Yljar manni um hjartaræturnar að sjá þessa vini streyma til landsins
hvern á fætur öðrum.
Reyndi við þriðja
mann að komast inn að Langavatnsstíflu á sunnudag,en urðum frá að hverfa vegna
aurbleytu,rétt norðan við gagnamannakofa fyrrum Álfthreppinga undir hlíðum
Rauðkúlu,sem gaus fyrir 3500 árum og breytti farvegi Langár úr Hraundal niður
Grenjadal. En meira um það seinna.
Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur stöðu til þess að vera
sallarólegur og taka sér allan þann tíma sem hann þarf til að ganga úr skugga
hvert framhaldið verður.
Hins vegar veit hann það manna best að óvissa lengur en fram
að helgi er ekki skynsamleg.Annað hvort segir Framsókn við erum til eða við
verðum að fara í hvíld og enduruppbyggingu.
Kaffibandalagsflokkarnir eru núna í ströngu
áfallahjálparprógrammi eftir að hafa fagnað of snemma á kosningavökum á
sjónvarpsstöðvunum.Minna helst á partýblöðrur,sem loftið hefur lekið úr eftir
nóttina. Sérstaklega eru vinstri grænir illa haldnir,en Ingibjörg Sólrún er með
rauðan vinstri vanga eftir kinnhest kjósenda.
Hvernig í ósköpunum stendur á því að allir virðast fara eins
og heitir grautar í  kringum kött, er
kemur að pólitísku afhroði Samfylkingarinnar eftir 8 ára stjórnarandstöðu og
meinta sérstaklega harða stjórnarandstöðu eftir að flokkurinn varpaði Össuri
Skarphéðinssyni fyrir róða til fullnægja blindum metnaði Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur.
Gerir fólk sér grein
fyrir því að Samfylking tapaði langleiðina sömu prósentustigum og framsókn,en
bara færri þingmönnum Svo stóðu menn á torgi alla nóttina til að segja að
skoðanakannanir hefðu í marslok sýnt 19 prósenta fylgi og því væri þetta
stórkostlegur sigur..Hvers slags rugl er þetta eiginlega.Samfylkingin þarf ekki
síður en Framsókn að fara í naflaskoðun,hvað klikkaði annað en Ingibjörg?
Það var sérstakleg brjóstumkennanlegt er Sigmundur Ernir
Rúnarsson og Egill Helgason voru ítrekað að reyna að gera lítið úr hrakförum Samfylkingar.
Annars var Stöð tvö mun betri en RÚV sem gengur illa að losa
sig við stofnanabraginn,þótt Sigmundur Ernir væri í bland brilliant og æði
köflóttur, sérstaklega er fór að líða á nóttina og stjórnmálafræðingurinn Einar
Mar fattaði ekki græna glóru,að ljóst var strax upp úr miðri nótt að
ríkisstjórnin myndi halda velli.
Hann og Kristján Már voru einfaldlega ekki með tölurnar á
hreinu því þeim var svo í mun að halda áhorfi, með því að skrökva að fólki að
spennan yfir örlögum ríkisstjórnarinnar væri óbærileg.
Kjarnaspurning, hversvegna er pólitískt afhroð Samfylkingar
leyndó??
Einfalt svar,stuðningsmenn frúarinnar mega ekki til þess
hugsa að kusk komi á pilsfald hennar.Grundvallar mistök í pólitík,að reyna að
breiða yfir mistökin.Formaðurinn þarf að slá í borðið og byrsta sig og spyrja
hvar klikkuðum við.
Tilgangslausu pólitísku samsulli Ómars Ragnarssonar og
Margrétar Sverrisdóttur er lokið með verðskulduðum rassskelli.Þau áttu ekkert
erindi og engan boðskap og ég skammast mín hálft í hvoru fyrir framkomu þessa gamala vinar
mins,sem hann segir að vísa vera af illri nauðsyn.
Hann var sannarlega
maðurinn,sem kveikti ást þjóðarinnar á landinu sínu, og stórbrotinni fegurð
þess .En honum urðu á þau grundvallarmistök að reyna að misnota væntumþykju
fólksins sér til pólitísks framdráttar.
Hann er í minni bók orðinn karl,sem rembist við straurinn til að
hamla gegn nýtingu auðlinda og þannig skerða lífskjör fólksins í landinu.. Hann
stendur eins og trúður á torgi og hrópar ekki mér að kenna að ríkisstjórn féll
ekki.Ótrúlegt og ömurlegt.
Hvernig í ósköpunum stendur á því að allir virðast fara eins
og heitir grautar í  kringum kött, er
kemur að pólitísku afhroði Samfylkingarinnar eftir 8 ára stjórnarandstöðu og
meinta sérstaklega harða stjórnarandstöðu eftir að flokkurinn varpaði Össuri
Skarphéðinssyni fyrir róða til  að fullnægja blindum metnaði Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur.
Gerir fólk sér grein
fyrir því að Samfylking tapaði langleiðina sömu prósentustigum og Framsókn,en
bara færri þingmönnum Svo stóðu menn á torgi alla nóttina til að segja þetta sigur því skoðanakannanir hefðu í marslok sýnt 19 prósenta fylgi.Hvers slags rugl er
þetta eiginlega.Samfylkingin þarf ekki síður en Framsókn að fara í
naflaskoðun,hvað klikkaði annað en Ingibjörg?
Það var sérstakleg brjóstumkennanlegt er Sigmundur Ernir Rúnarsson
var ítrekað að reyna að gera lítið úr hrakförum Samfylkingar.Annars var Stöð
tvö mun betri en RÚV sem gengur illa að losa sig við stofnanabraginn,þótt
Sigmundur Ernir væri  æði köflóttur,
sérstaklega er fór að líða á nóttina og stjórnmálafræðingurinn Einar Mar
fattaði ekki græna glóru,að ljóst var strax upp úr miðri nótt að ríkisstjórnin
myndi halda velli.Hann og Kristján Már voru einfaldlega ekki með tölurnar á
hreinu því þeim var svo í mun að halda áhorfi, með því að skrökva að fólki að
spennan yfir örlögum ríkisstjórnarinnar væri óbærileg.
Kjarnaspurning, hversvegna er pólitískt afhroð Samfylkingar
leyndó??
Sæl og blessuð föstudagur fyrir kosningadag og allt upp í
loft og alger óvissa um allt nema það að Eiríkur Hauksson er á leiðinni
heim.Gömlu austantjaldríkin vildu ekki Valentínu. Kúkur gerist eins og
krakkarnir segja og mæla á enska tungu. Hallur Hallsson og Sigurður G Tómasson
á föstudagsvettvangi hér eftir smá stund. Hrafnaþing er á rás 18 og Visir.is
.Eiríkur var þjóð sinni til mikils sóma og allt þetta júróvision
húllum hæ hefur hefur glatt okkur og skemmt og verið óþrjótandi umræðuefni á
kaffistofum og í saumaklúbbum. Sannkalluð sáluhjálpar þerapía meðan sólin var
að skríða ofar og austar yfir eyjuna bláu.Örugglega á við margar gleðipillur.
Svo treystum við því bara að RÚV leggi ekki árar í bát
þannig að tónskáld og textasmiðir geti farið að búa sig undir næstu undanrásir.
Ég sé að Jói í Bónus tekur undir áhyggjur mína af
hugsanlegum embættismistökum Björns Bjarnasonar.Ég sagði í gær að ég tryði því
ekki að Björn myndi skipa embættisafglapanmeistara Íslands Jón
H.B.Snorrason  ríkissaksóknara.
´Mér hafði ekki dottið til hugar að strika Björn út á
morgun,en verð að viðurkenna, að ef ég vissi hundrað prósent,að hann ætlaði að
gera þetta, myndi ég að minnsta kosti íhuga að taka áskorun Jóa. En ég trúi því
einfaldlega ekki, þetta hlýtur að vera kjaftasaga.Björn endar ekki feril sinn í
stjórnmálum með slíkri bommertu.
Ég held að kjósendum finnist þeir vera hálfkaffærðir í
könnunun og það sé skýringin á því hvernig ríkisstjórnin heldur velli eða
fellur frá morgni til kvölds.Skyldi hins vegar lítið í því hvernig
Félagsvísindastofnun bætti 300 manns við dagsgamla könnun fyrir stöð 2 og fékk dramtíska
niðurstöðu fyrir besta kosningauppistandara íslenskra ljósvakamiðla Sigmund
Erni. Hann  greip efnið á loft og
afgreiddi svo snyrtilega að þjóðin greip andan á lofti.
Þetta gerir kosningarnar og kosningasjónvarp morgundagsins
enn meira spennandi,en ég fæ ekki betur séð en Sigmundur Ernir og hans fólk
verði með miklu flottari umgjörð,allavega ætla ég að vera með stillt á þau.
Rosalega spennandi einkavæðing Aktavis,búlgarskir
símagróðapeningar að finna sér farveg á Íslandi.180 milljarðar, hálf íslensku
fjárlögin fyrir lítið lyfsalafyrirtæki,ekki einu sinni 10 ára gamalt.
Sæla og bless á fimmtudegi,ekki á morgun heldur hinn verður stóridómur kveðinn upp,lottótölur hádegisins 9-23-4-17-10 og stjórnin heldur velli. Ásta
Möller og Sigríður Andersen hér á eftir tvær
úr kvennafansi Sjálfstæðisflokksins sem eiga eftir að setja svip sinn á
þingstörfin næstu 4 árin.
Mér fannst áhugaverð útfærsla Stöðvar  tvö manna á formannaþættinum í gær, þótt við
þekkjum þetta fólk orðið allvel.Ekkert kom á óvart, nema svörin eins og
spurningarnar óvenju stutt og beinskeytt,enda tímarammi.
Ég er orðinn þreyttur á þessu endalausa andskotans stagli
á  stórauknum ójöfnuði,vænrækslu ríkisstjórnarinnar
og allsherjar fátæktarvæli vinstri manna.Væli á mestu velsældartímum
þjóðarinnar, þegar öryrkjar og aldraðir hafa aldrei í lífinu notið betri
kjara.Það skiptir engu máli hversu miklu verður ausið úr gnægtarbrunni
samaaflafjár okkar, það verður alltaf eitthvað af fólki sem verður fátækt.
Í þjóðfélaginu eru líka alls konar öryggisnet,sem hjálpa
þessum samborgurum.Allir sem vilja vinna og geta unnið hafa það gott, þeir sem
ekki geta unnið eða nenna ekki að vinna hafa það ekki eins gott.Það hefur það
enginn,eða kannski á enginn að þurfa að hafa það skítt.
Vinstri menn sameinaðir í ríkisstjórn gætu ekki útrýmt
fátækt þótt þeir lofuðu upp á tíu fingur. Þeir gætu heldur ekki útrýmt
biðlistum þótt þeir lofuðu upp á 10 fingur, þær gætu heldur ekki útrýmt
ójöfnuði þótt þeir lofuðu upp á 10 fingur.
Það besta við hinn svokallaða ójöfnuð á Íslandi, er að hann
er að stærstum hluta kominn til af því að aflaskipstjórum á landinu hefur
fjölgað gríðarlega.Það eru ekki bara Bónusfeðgar,Björgólfsfeðgar Bakkavarabræður
Rassmussenfjölskyldan og Samherjarfrændur sem hafa efnast.Það eru þúsundir
annarra,sem taka virkan þátt í umbreytingunni og útrásarævintýrinu. Það eru
aðrar þúsundir,sem hafa hætt fé sínum og fjöreggi í að fjárfesta í
fyrirtækjunum,sem knýja velsældarvélina.
Það sem vinstri menn á Íslandi þjást af fyrir þessar
kosningar er öfundin og að sjá ofsjónum yfir velgegni annarra. Skyldi enginn
vinstri maður eða kona hafa efnast á þessum gósentímum.Er enginn ríkur kommi
eða krati.Eru þingmenn vinstri grænna og Samfylkingarinnar bara aumir
fastlaunamenn sem engjast sundur og saman af öfund.Hefur enginn þeirra keypt
bréf í bönkunum, aktavis,fl.group og exista svo eitthvað sé nefnt og borgað 10
prósent fjármagnstekjuskatt. Er þetta fólk bara farþegar sem svo hrópar af
hverju ekki ég, af hverju ekki ég.??
Ætli það geti verið mergur málsins.
Ég bar virðingu fyrir Guðjóni Arnari Kristjánssyni, er hann
var einn aflasælasti togaraskipstjóri landsins.Ég ber svo sem líka virðingu
fyrir honum sem stjórnmálamanni,en miklu minni.Hann breyttist úr kallinum í
brúnni í vælukarl.Vælir um kvótakerfi,sem hann tók þátt í að byggja upp og hann
veit að lagði hornsteininn að Íslands hagsældar Fróni.
Íslands hagsældar Fróni því að kvótakerfið varð okkur til
slíkrar farsældar, að er sagnfræðingar úr hópi barnabarna okkar leggjast í að
brjóta til mergjar upphaf velmegunartímabils aldamótaáranna mun þá reka í
rogastans yfir því hve þetta kerfi skapaði gríðarlegan auð á innan við 20 árum.
Þeir munu einnig verða agndofa yfir upprisu íslensks
efnahagslífs í kjölfar einkavæðingar ríkisbankanna.Einkavæðingar,sem leysti
þvílíka orku umbreytinga úr læðingi, er dauðri hönd pólitískrar samtryggingar
og skömmtunar var svipt í burtu, að engin fordæmi eru fyrir.
Allt þetta skilja vinstri menn ekki almennilega. Þeir skilja
ekki af hverju svo margir geta keypt sér eða byggt svo stór hús, keypt sér svo
flotta bíla,flogið með einkaþotum eða haldið afmæli með stæl.
Þeir skilja ekki af hverju menn og konur,sem afla milljarða
tuga fyrir eigendur sína eiga að fá vænan hlut.
Þeir skildu jú í
gamla daga er Binni í Gröf,Eddi Gísla,Venni á Grindvíking  Halldór á Maí og Hrólfur á Júpiter borguðu
hæst útsvar af því að þeir fiskuðu mest.
Þeir skilja ekki að Sigurður og Hreiðar Már,Bjarni Ármanns
,Halldór og Sigurjón,Jón Ásgeir , Jói í Bónus, Pálmi og Jói í Fons,
Björgólfarnir ,Hannes og Þórður Már eru nýju aflakóngarnir
og þær þúsundir,sem eru í áhöfnum þeirra eru allir með hlut.
Þetta skilja ekki vinstri menn og þess vegna er ekki hægt að
treysta þeim í brúnni á þjóðarskútunni.Hvernig er hægt að vera með
útgerðarstjóra,sem skilur ekki hvernig áhöfnin beitir veiðarfæri til að fina
torfu og koma henni ferskri upp á dekk og svo á markað.
Útgerðarstjóra,sem öfundar svo áhöfnina,að hann leitar leiða
til að klekkja á henni, með einhverju móti,stöðva sóknina og leggja skipinu í 5
ár!!! Í 5 ár, Láta ryðga við bryggju í 5 ár.
Er þetta það sem fjórir af hverjum 10 Íslendingum vilja
kjósa yfir sig. Í guðanna bænum!!!!!!